Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri
Eva Ollikainen
Einleikari
Isabelle Faust
Efnisskrá
Ludwig van Beethoven//Fiðlukonsert
Gustav Mahler//Sinfónía
nr. 5
Isabelle Faust er einn fremsti fiðluleikari samtímans og íslenskum tónleikagestum að góðu kunn, en margir muna eflaust eftir túlkun hennar á fiðlukonserti Brahms vorið 2019. Faust var einnig staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2010-11. Faust kemur reglulega fram með Berlínarfílharmóníunni og hlaut með þeim Gramophone- verðlaunin 2017 fyrir túlkun sína á kosertum Mozarts. Nú leikur Faust hinn tignarlega og ljóðræna fiðlukonsert Beethovens.
Gustav Mahler samdi risavaxin verk og er fimmta sinfónían þar engin unantekning. Þannig varð tónlistarlegur módernismi áranna í kringum aldamótin 1900 stundum að því sem nefnt hefur verið „maxímalismi“, það er að segja verk urðu gríðarlega stór í sniðum. Fimmta sinfónían var frumflutt í október árið 1904 og lætur hún engan ósnortrinn, hvort heldur um er að ræða kraftmikið og voldugt upphafið, glæsilegt hornsóló í þriðja þætti eða angurværan fjórða þáttinn (Adagietto) sem oft er fluttur einn og sér. Hér fylgir Eva Ollikainen eftir framúrskarandi túlkun sinni á fyrstu sinfóníu tónskáldsins á 70 ára afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands vorið 2020.
*Fiðlukonsert Dvoráks var upphaflega á efnisskránni og báru tónleikarnir heitið Faust leikur Dvorák. Vegna breytinga á efnisskrá heita tónleikarnir nú Faust leikur Beethoven.
*Tónleikarnir eru u.þ.b. tvær klst. með tuttugu mínútna hléi.