Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri
Dmitry Matvienko
Einleikari
Sæunn
Þorsteinsdóttir
Efnisskrá
Unsuk Chin//Subito
con forza
Dmítríj Shostakovitsj//Sellókonsert
nr. 1
Ludwig van
Beethoven//Sinfónía nr. 6
Kóreska tónskáldið Unsuk Chin hefur um árabil verið í hópi fremstu samtímatónskálda á heimsvísu. Hún hlaut hin virtu Léonie Sonning-verðlaun árið 2021, en meðal fyrri verðlaunahafa eru Ígor Stravinskíj og Arvo Pärt. Árið 2019 sagði listrýnir The Guardian að sellókonsert Chin væri eitt af allra bestu tónverkum 21. aldarinnar til þessa. Verkið, Subito con forza, samdi hún í tilefni af 250 ára afmæli Beethovens en það var frumflutt á Proms-tónlistarhátíðinni 2021 og hlaut þar lofsamlega gagnrýni, m.a. í stórblaðinu The Times.
Sæunn Þorsteinsdóttir, staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands, er einn fremsti sellisti Íslands og hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir tilfinningaþrunginn leik sinn. Hún heldur tónleika víða um heim, er m.a. fastagestur í Carnegie Hall og kom fram með Fílharmóníusveitinni í Los Angeles á rómaðri Íslandshátíð þeirra. Þá hefur hún verið tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Hér leikur hún fyrri sellókonsertinn eftir Shostakovitsj en konsertinn samdi tónskáldið árið 1959 og tileinkaði góðvini sínum, rússneks sellóleikaranum Mstislav Rostopovítsj sem frumflutti konsertinn í Leníngrad sama ár.
Hvít-Rússinn Dmítríj Matvienka bar sigur úr býtum í hinni alþjóðlegu Malko-keppni fyrir unga hljómsveitarstjóra árið 2021. Hann nam upphaflega kórstjórn og var félagi í kór musicAeterna-hópsins en nam síðar hljómsveitarstjórn í Moskvu. Hann stjórnar nú Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta skipti en síðast á efnisskránni hljómar sveitasinfónía Beethovens. Hún er í fimm þáttum, þar á meðal hinn undurblíði annar þáttu, Við lækinn.