Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri
Timothy Henty

Leikstjóri 
Chris Columbus

Tónlist
John Williams

Kvikmyndin Harry Potter og leyniklefinn™ er önnur myndin í röðinni um ævintýraveröld galdrakrakkanna fræknu. Hún naut gríðarlegra vinsælda þegar hún kom út og þar fylgdu þau Daniel Radcliffe, Emma Watson og Rupert Grint eftir eftirminnilegum leik sínum úr fyrstu kvikmyndinni. Þegar hér er komið við sögu eru þau á öðru ári í HogwartsTM-skóla og lenda í miklum háska þegar skelfileg óværa sleppur út úr hinum leyndardómsfulla leyniklefa. Kvikmyndin hlaut BAFTA- verðlaun á sínum tíma og tónlistin eftir John Williams var tilnefnd til Grammy-verðlauna.

Eins og í fyrstu myndinni leikur tónlistin stórt hlutverk. Þannig notar Williams leiðarstef til þess að lýsa persónum og stöðum. Um er að ræða eitt dáðasta ævintýri síðari ára sem verður ljóslifandi á kvikmyndatjaldinu með lifandi tónlistarflutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Kvikmyndin er sýnd með íslenskum texta. Mælt er með myndinni fyrir 8 ára og eldri. 

Hægt er að kaupa gjafamiða á tónleikana sem afhentir eru í töfrandi Harry Potter gjafaumbúðum. 

WIZARDING WORLD and all related trademarks, characters, names, and indicia are © & TM Warner Bros. Entertainment Inc. Publishing Rights © JKR. (s22)