Hrafntinna er einstakur sviðslistaviðburður sem hrífur áhorfendur með sér í ferðalag um ímyndað landslag. Listafólkið yfirstígur hefðbundin landamæri og fléttar saman tónlist, hljóðlist, dansi, gjörningum, leikhúslistinni, myndlist og ljósahönnun þannig að úr verður leiftrandi litaspjald sem er sannur óður til náttúrunnar. Stjórnandinn notar rafrænan hanska til að skapa og kalla fram hljóð og magnar þannig enn frekar leik söngvara og tónlistarfólks að andstæðum, orku og hreyfingum. Með spuna og innsæi leyfir listafólkið tónlist og hreyfingum að kvikna í augnablikinu. Í sýningunni eru mörk hefðbundinna hugmynda um óperuformið rofin og unnið úr frumkröftum náttúrunnar sem skapa flæði frá hinu djúpa, dimma og óþekkta og inn í það óvænta og berskjaldaða þar sem við finnum fyrir viðkvæmni og fegurð.
Gestum
býðst að hreyfa sig um á meðan á sýningu stendur og leyfa ímyndunaraflinu að
útvíkka ferðalagið. Á bak við Hrafntinnu stendur framsækinn hópur listafólks úr
fremstu röð sem býður gestum Íslensku óperunnar á Listahátíð í Reykjavík að njóta
upplifunar sem á sér enga líka.
Listrænt
teymi - Hrafntinna
Halldis
Rønning -
Tónskáld & stjórnandi
Hilmar
Thordarson -
Tónskáld & raftækni
Thorbjörg
Jónsdottir -
Vídeóverk
Í
listrænu samstarfi við;
Karen
Eide Bøen -
Danshöfundur
Niels
Thibaud Girerd
- Sviðsetning
Anton Kroyer - Ljósahönnun
Aron Þór Arnarsson - Hljóð
Helga Lúðvíksdóttir - Búningar
Ísak Freyr Helgason - Útlitshönnuður
Íslenska Óperan:
Oddur
Jónsson -
barítón
Ragnheiður Jóhannsdóttir
- sópran
CAPUT
Ensemble:
Guðni
Franzson -
klarinett
Þuríður Jónsdóttir -
flautur
Sigurður
Halldórsson -
selló
Hrafnkell
Örn Guðjónsson
(Keli) – slagverk
IMNO
ensemble:
Jostein
Stalheim - harmónikka
Guro
Skumsnes Moe -
bassi & rödd
Else
Olsen Storesund
- píanó
Tabula
Rasa Vocal Ensemble:
Sigrun
Jørdre -
sópran
Zsuzsa
Zseni -
mezzósópran
Tord
Kalvenes -
tenór
Arild
Rohde - tenór
William
Hjort-Johansen
- aðstoð við hljóðvinnslu/forritun
Egill Kristbjörnsson - aðstoð við myndvinnslu
Óli Starri - aðstoð við myndvinnslu
Friðfinnur Sigurðsson - aðstoð við hljóðvinnslu
Hár og förðun:
Lilja Dís Smáradóttir
Lísa María Markúsdóttir
Kolbrún Vignisdóttir
Maren Anna
Hera Hlín
Svið:
Ólafur Haukur Matthíasson, Snorri Arnarson, Hugi Guðmundsson
Framleiðsla:
Gunnbjørg
Johannessen – framleiðsla Syv Mil
Kristinn Brynjar Pálsson - verkefnastjóri Hörpu
Dýri Jónsson - framleiðandi