Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Sellóleikarinn Sigurgeir Agnarsson flytur verk eftir frændurna Hafliða Hallgrímsson og Huga Guðmundsson. M.a. verður frumflutt nýtt verk eftir Hafliða, Solitaire II, sem hann samdi sérstaklega fyrir Sigurgeir.

Efnisskráin
Hafliði Hallgrímsson: Solitaire op.1 (1970/1991)
1. Oration - Largo
2. Serenade - Andante
3. Nocturne - Larghetto
4. Dirge - Largo
5. Jig - Allegro

Hugi Guðmundsson: Alluvium (2015)

Hugi Guðmundsson: Veris (2020)

Halfiði Hallgrímsson: Solitaire II op. 58 (1974/2020-2021) - frumflutningur
1. Lamento - Largo
2. Circum - Allegro
3. Intersessio - Largo
4. Perpetuum Mobile - Allegro

Um flytjanda
Sigurgeir Agnarsson var árið 2017 skipaður í stöðu leiðara sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en hafði á undan gegnt stöðu aðstoðarleiðara frá árinu 2003. Auk starfa sinna fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur Sigurgeir víða komið við í íslensku tónlistarlífi sem flytjandi, kennari og skipuleggjandi ýmissa tónlistarviðburða.

Sigurgeir hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands í sellókonsertum Schumanns, Haydn (C og D dúr), Beethoven þríkonsertinum og Brahms tvíkonsertinum. Auk þess hefur hann leikið einleik með Kammersveit Reykjavíkur, Blásarasveit Reykjavíkur og Bochumer Symphoniker. Sigurgeir hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum, bæði heima og erlendis, m.a. Listahátíð í Reykjavík, Reykjavik Midsummer Music og Oulunsalo hátíðinni í Finnlandi. Sigurgeir var tilnefndur sem flytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2014 ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur fyrir heildarflutning á verkum L.v. Beethoven fyrir selló og píanó á þrennum tónleikum á Listahátíð í Reykjavík sama ár.

Sigurgeir hefur kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík, síðar Menntaskóla í tónlist, frá árinu 2003. Sigurgeir er einn af stofnendum Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar í Hörpu og situr jafnframt í stjórn akademíunnar. Á árunum 2013 til 2020 gegndi Sigurgeir stöðu listræns stjórnenda Reykholtshátíðar í Borgarfirði.

Sigurgeir hóf nám á selló hjá Gunnari Kvaran við Tónlistarskóla Garðabæjar árið 1984, þá átta ára gamall. Hann lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995 og hélt til frekara náms við New England Conservatory of Music í Boston og síðar við Robert Schumann tónlistarháskólann í Düsseldorf.

Sigurgeir hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands sem og Starfsmannafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sigurgeir sat um margra ára skeið í stjórn Hjólreiðasambands Íslands og var árið 2018 gerður að heiðursfélaga sambandsins fyrir störf sín í þágu hjólreiðaíþróttarinnar.

Um tónskáldin
Hafliði Hallgrímsson hefur átt óvenjulega fjölbreyttan og viðburðaríkan feril bæði sem sellóleikari og tónskáld. Hann stundaði nám sem sellóleikari í Tónlistarskólanum í Reykjavík og lauk þaðan burtfaraprófi 1962. Ári seinna sótti hann tíma hjá Enrico Mainardi í Rómaborg. Hann var meðlimur í Sinfóníuhljómsveit Íslands veturinn 1963-64 en fór síðan til London og innritaðist í Royal Academy of Music þar sem hann lauk burtfararprófi 1967, og vann Madame Suggia verðlaunin fyrir sellóleik. Hafliði kom fyrst fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands 1966, og 1971 debúteraði hann í Wigmore Hall í London með einleikstónleikum við góðar undirtektir gagnrýnanda. Árið 1967 bauðst honum staða í Haydn strengja tríóinu og varð hann fljótlega uppfrá því eftirsóttur sem þáttakandi í vel þekktum kammerhópum og kammerhljómsveitum í London, m.a. English Chamber Orchestra, Menuhin Festival Orchestra og Monteverdi Orchestra. Hann fór í tvö heimsferðalög sem stóðu yfir í sex vikur hvert, bæði með English Chamber Orchestra undir stjórn Daniel Barenboim, og Menuhin Festival Orchestra undir stjórn Yehudi Menuhin, og kom alls fram sem sellóleikari og meðlimur í margslags kammerhópum og kammersveitum í 45 löndum. Hafliði hefur allan sinn feril tekið þátt í flutningi á nýrri tónlist, og var um árabil meðlimur í The New Music Group of Scotland og Icelandic Canadian Ensemble.

Árið 1977 tók hann við stöðu sem fyrsti sellóleikari í Scottish Chamber Orchestra, sem starfaði á þeim árum með miklum blóma og lék árlega á Edinborgarhátíðinni og var þrisvar sinnum staðarhljómsveit á Festivalinu í Aix en Provence. Árið 1982 sagði hann upp stöðu sinni sem sellóleikari í S.C.O., til að helga sig svo til eingöngu tónsmíðum, sem hann hafði stundað með sellóleiknum alveg frá unglingsárum. Hann stofnaði Mondrian Tríóið í Edinborg sem lék aðallega í Skotlandi og hafði fasta tónleikaseríu í Queen´s Hall í Edinborg í nokkur ár. Hafliði stundaði nám í tónsmíðum hjá Elizabeth Luthyens, Dr. Alan Bush og Sir Peter Maxwell Davies. Tónsmíðar hans hafa verið leiknar víða um heim og nema nú rúmlega 100 talsins. Hann hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir tónverk sín, m.a. fyrstu verðlaun í alþjóða tónlistarkeppninni á Ítalíu sem kennd er við Viotti, önnur verðlaun í alþjóða tónlistarkeppninni í Póllandi sem kennd er við Wieniawski, og 1986 voru honum veitt Tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir fiðlukonsertinn Poemi. Hann er Associate of Royal Academy of Music í London, og árið 2002 vann hann til Nesta Fellowship sem er fjögurra ára styrkur og veittur af Menntamálaráði ensku ríkisstjórnarinnar. Hann hefur þar að auki verið staðartónskáld Sinfóníuhhljómsveitar Íslands tvisvar sinnum.

Hugi Guðmundsson (1977) nam tónsmíðar og raftónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík, Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn og Sonology stofnunina í Den Haag. Hugi hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlaun fyrir list sína og má þar nefna íslensku tónlistarverðlaunin fjórum sinnum, Kraumsverðlaunin, þrjár heiðurstilnefningar á alþjóðlega tónskáldaþinginu og fyrstu verðlaun í tónsmíðakeppni Norrænna músíkdaga í Finnlandi 2013. Hugi hlaut Bjartsýnisverðlaunin árið 2014 og það ár hlaut hann einnig hæsta styrk sem veittur er af danska ríkinu til tónskálda en hann er í formi þriggja ára starfslauna. Aðeins eitt tónskáld úr hverjum tónlistargeira hlýtur þennan styrk ár hvert.

Stærsta verk Huga til þessa er óperan Hamlet in absentia en fyrir hana hlaut hann íslensku tónlistarverðlaunin 2016 og var tilnefnd til fjölda annara verðlauna, meðal annars Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2018. Af öðrum lykilverkum má nefna BOX, konsert fyrir harmónikku og lírukassa og barnaóperuna Dóm völvunnar sem flutt hefur verið yfir 70 sinnum í fjórum löndum. Að lokum má nefna óratoríuna The Gospel of Mary sem verður frumflutt í Osló 2022 og síðar sama ár í Danmörku og á Íslandi.

Júlí
Janúar
Febrúar
Mars
Apríl
Maí
Júní
Júlí
Ágúst
September
Október
Nóvember
Desember
2025
1950
1951
1952
1953
1954
1955
1956
1957
1958
1959
1960
1961
1962
1963
1964
1965
1966
1967
1968
1969
1970
1971
1972
1973
1974
1975
1976
1977
1978
1979
1980
1981
1982
1983
1984
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
2013
2014
2015
2016
2017
2018
2019
2020
2021
2022
2023
2024
2025
2026
2027
2028
2029
2030
2031
2032
2033
2034
2035
2036
2037
2038
2039
2040
2041
2042
2043
2044
2045
2046
2047
2048
2049
2050
MánÞriðMiðFimFösLauSun
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
0:00
1:00
2:00
3:00
4:00
5:00
6:00
7:00
8:00
9:00
10:00
11:00
12:00
13:00
14:00
15:00
16:00
17:00
18:00
19:00
20:00
21:00
22:00
23:00