Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Upplýsingar til gesta
Samkvæmt núgildandi reglugerð um sóttvarnir verða allir gestir að sýna neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi við komu á viðburði, og á það því við um þessa viðburð, ásamt grímuskyldu. Hraðpróf gildir í 48 klst og eru gjaldfrjáls.

Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að fara í hraðpróf á eftirfarandi stöðum: Mikilvægt er að skrá sig í próf áður en mætt er

• Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins býður upp á hraðpróf á Suðurlandsbraut 34; www.hradprof.covid.is
• Covidtest; býður upp á hraðpróf bæði á Kleppsmýrarvegi 8 og í Hörpu. Aðstaðan í Hörpu er í kjallara hússins, beint á móti inngangi frá bílastæðakjallara. www.covidtest.is athugið að hraðprófsstöð í Hörpu lokar kl. 18
• Öryggismiðstöðin býður upp á hraðpróf við Kringluna og BSÍ; www.testcovid.is
Utan höfuðborgarsvæðis www.hradprof.covid.is


Árleg jólasýning Dansstúdíó World Class fer fram laugardaginn 4. desember í Silfurbergi.
Þetta er í annað skipti sem danssýningin fer fram í Hörpu og er tilhlökkunin hjá nemendum mikil.
Allir nemendur skólans koma fram og sýna atriði með sínum danshóp. Frábær stemning myndast alltaf á sýningunum enda er þetta einn skemmtilegasti dagur ársins í starfsemi skólans. 

Tvær sýningar fara fram yfir daginn og sýna allir danshópar á báðum sýningum.
Sýning 1 kl. 11:45
Sýning 2 kl. 13:45