Gítaristinn og tónskáldið Bjarni Már Ingólfsson kemur fram ásamt tríói sínu til að flytja nýjar frumsamdar tónsmíðar. Tónlist Bjarna væri hægt að flokka undir djass regnhlífinni, en Bjarni sækir innblástur í fjölbreyttar stefnur og strauma tónlistar, til að skapa persónulega nálgun á lagasmíðum og flutningi. Þríeykið hefur komið saman mjög reglulega frá árslokum 2019 til að vinna í nýju frumsömdu efni.
Almennt miðaverð er 3.500 kr.
Nemendur og eldri borgarar geta keypt miða á 2.000 kr. í miðasölu Hörpu.