Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Gítarleikarinn og tónskáldið Mikael Máni fagnar útgáfu annarrar sólóplötu sinnar, “Nostalgia Machine”, með útgáfutónleikum í Hörpu 13.ágúst.

Á tónleikunum verður tónlist eftir Mikael Mána flutt í útsetningum fyrir óhefðbundna fimm manna jazzhljómsveit og strengjakvartett. Meðlimir hljómsveitarinnar skarta fjölbreyttum bakgrunni og kemur hér saman tónlistarfólk úr heimi jazz, popp, klassískrar-, tilraunakenndrar- og samtímatónlistar, entónsmíðarnar blanda saman ýmsum stílum.
Á tónleikunum verða flutt lög af plötunni “Nostalgia Machine”, en einnig verða flutt lög af fyrstu sólóplötu Mikaels, „Bobby“, ásamt óútgefnu efni. Mikael hefur verið að þróa sinn eigin stíl innan jazztónlistar sem fellur undir kammer jazz, og munu tónleikagestir fá að njóta þeirrar vinnu þegar hljóðheimur tónlistarinnar verður stækkaður með útsetningum fyrir strengjakvartett, sem ekki er að finna á plötunum.

Mikael Máni Ásmundsson var tilnefndur til tveggja verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 í flokknum jazz og blús, en þetta er annað árið í röð þar sem hann er tilnefndur sem lagahöfundur ársins.Platan „Nostalgia Machine“ mun koma út viku fyrir tónleikana en hún var pródúseruð af Matt Pierson, einum virtasta upptökustjóra í heimi jazztónlistar í dag. Hann hefur stjórnað upptökum hjá listamönnum á borð við Pat Metheny, Brad Meldau og Joshua Redman, auk þess sem hann hefur fengið 6 Grammy-tilnefningar.

Á tónleikunum koma við sögu 10 flytjendur, en hljómsveitina skipa:
-Mikael Máni Ásmundsson: Rafgítar og rafhljóð
-Lilja María Ásmundsdóttir: Metalafónn, píanó, rafhljóð og hljómborð
-Ingibjörg Elsa Turchi: Rafbassi
-Sölvi Kolbeinsson: Altó saxófónn og klarinett
-Magnús Trygvason Elíassen: Trommur
-Sigrún Harðardóttir: Fiðla
-Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir: Fiðla
-Þórunn Harðardóttir: Víóla
-Unnur Jónsdóttir: Selló
-Marína Ósk Þórólfsdóttir: Söngur og hljóð

Tónleikarnir eru styrktir af SUT, Tónlistarsjóði Rannís og Menningarsjóði FÍH.