Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Tónleikarnir sem vera áttu 13. janúar 2022 hafa fengið nýja dagsetningu 25. maí 2022 - allir miðahafar fá frekari upplýsingar sendar í tölvupósti

Efnisskrá 
Henri Tomasi - Trompetkonsert
Ernesto Lecuona - Sibone
Franz Lehár - Meine Lippen, sie küssen so heiß úr Giudittu
Gaetano Donizetti - Cavationa úr Don Pasquale
Igor Stravinskí - No word from Tom úr The Rake´s Progress

Hljómsveitarstjóri
Kornilios Michailidis

Einleikarar
Birkir Örn Hafsteinsson, klarínett
Ingibjörg Ragnheiður Linnet, trompet

Einsöngvari
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir

Framtíð tónlistarlífs á Íslandi hvílir á herðum þeirra ungu hljóðfæraleikara og söngvara sem um þessar mundir taka sín fyrstu skref á stóra sviðinu. Það er sérstakt tilhlökkunarefni þegar framúrskarandi ungmenni stíga fram sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands og njóta árangurs þrotlausrar vinnu. Í salnum sitja fjölskylda og vinir sem hafa fylgst með tónlistarnáminu um margra ára skeið og fagnaðarlætin í Eldborg eru aldrei einlægari en á þessum skemmtilegu og spennandi tónleikum.