Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Efnisskrá
Claude Debussy: Fiðlusónata í g moll L. 140
Anton Webern: 4 þættir fyrir fiðlu og píanó op. 7
Elena Postumi: Nýtt verk fyrir fiðlu og píanó

——

John Cage: Næturljóð
Richard Strauss: Fiðlusónata í Es dúr op. 18

Pétur Björnsson útskrifaðist með framhaldspróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2015 þar sem kennarar hans voru Ari Þór Vilhjálmsson og Guðný Guðmundsdóttir. Sama haust hóf Pétur nám við Hochschule für Musik und Theater ,,Felix Mendelssohn Bartholdy" í Leipzig, fyrst undir handleiðslu Elfu Rúnar Kristinsdóttur og svo Carolin Widmann. Frá og með hausti 2019 stundar hann mastersnám í bekk Carolin Widmann við sama skóla. Til námsauka hefur hann einnig sótt ótal einkatíma og masterklassa hjá fiðluleikurum svo sem Christian Tetzlaff, Philippe Graffin, Sergei Ostrovsky, Ilya Gringolts og Robert Rozek og píanóleikaranum Phillip Moll.

Pétur hefur komið víða fram sem einleikari svo sem í Kanada, Íslandi og í Þýskalandi. Nú síðast í mars 2019 þar sem hann frumlutti nýjan fiðlukonsert tileinkaðan honum eftir Elenu Postumi í Langholtskirkju með Ungfóníu og í desember 2019 í flutningi á Kammerkonsert Alban Berg ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni og Elju kammersveit í Iðnó en Pétur er virkur stofnfélagi í þeirri sveit. Sem flytjandi kammertónlistarhefur hann komið fram á Íslandi, Þýskalandi, Sviss og á Ítalíu. Þar má til að mynda nefna þáttöku hans á Reykholtshátíð 2018 og 2020 með Skark ensemble á Íslandi og á Bodensee Festival í Þýskalandi. Pétur spilar reglulega sem varamaður í Sinfóníuhljómsveit Íslands, auk þess að hafa spilað með ungsveitum og skóla og háskólasveitum á Íslandi, á Norðurlöndum og í Þýskalandi. Þá hefur hann gegnt starfi konsertmeistara með Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljómsveit Tónlistarháskólans í Leipzig.

Pétur er virkur utan klassísku tónlistarsenunnar en hann hefur verið meðlimur í kvartett Ólafs Arnalds á tónleikaferðalögum hans um heiminn síðan 2018. Þá hefur hann einnig samið og komið fram á tónleikum með gjörningasveitinni Hatara.

Elena Postumi hefur komið fram sem píanóleikari viðsvegar í Evrópu og í Bandaríkjunum. Eftir að hafa lokið einleikara- og meðleiksprófi frá S. Cecilia konservatoríunni í Róm hefur Elena að mestu helgað sig ljóðasöng og kammermúsík. Frá árinu 2015 hefur hún stundað nám í bekk Prof. Alexander Schmalcz við ,,Hochschule für Musik und Theater Felix Mendelssohn Bartholdy, Leipzig" , fyrst í meistaranámi en nú í ,,Meisterklasse" deild skólans. Árið 2018 bar hún sigur úr býtum sem meðleikari í Lortzing keppninni sem haldin er árlega í Leipzig við háskólann.

Á síðustu árum hefur Elena þróað með sér ótal tónlistarsambönd. Með baritónsöngvaranum Frederik Tucker myndar hún Dúó sem hefur komið fram í Belgíu, Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Íslandi. Sem flytjandi kammertónlistar er hún meðlimur í Trio Rovere (horn, fiðla og píanó). Þá kemur hún reglulega fram með píanóleikaranum Tommaso Graiff en þar má t.a.m nefna flutning þeirra á tvöföldum konsert J. S. Bach með hljómsveit Bach in der Box í Leipzig árið 2018. Elena er frá og með hausti 2019 meðleikari Mendelssohn Akademíu Gewandhaushljómsveitarinnar í Leipzig og í september 2019 lék hún debúttónleika sína sem varamaður í hljómsveitinni í uppsetningu hennar á Karnivali dýranna eftir Camille Saint-Saens.

Undir stjórn píanóleikarans Elizabeth Sombart er Elena virk sem meðlimur innan ,,Résonnance" samtakanna í Róm sem halda ókeypis tónleika á Ítalíu og í Sviss fyrir fólk sem að öllu jöfnu geta ekki sótt tónleika. Nú síðast í mars 2020, undir merkjum samtakanna, flutti Elena píanókonsert nr. 2 eftir L. v. Beethoven í gegn um beint streymi í netinu.

Árið 2019 lauk Elena mastersnámi í tónsmíðum við S. Cecilia konservatoríuna í Róm og hefur sem tónskáld fengist við fjölbreytt verkefni. Þar ber hæst að nefna fiðlukonsert hennar sem var fluttur í Langholtskirkju af Pétri Björnssyni og Unfóníu í mars 2019.

Frá árinu 2017 hefur Elena verið reglulegur gestur á Íslandi sem starfandi tónlistarmaður. Hún hefur haldið tónleika með íslenskum söngvurum í Sigurjónssafni og í Reykholtskirkju. Þá flutti hún ásamt Elmari Gilbertssyni ljóðaflokkinn Dichterliebe eftir R. Schumann í Sólheimakirkju árið 2018. Elena hefur einnig starfað við Íslensku Óperunna en hún var æfingapíanisti við uppsetningar hennar á La traviata og Brúðkaupi Fígarós árið 2019 við góðan orðstír. Frá og með hausti 2020 starfar Elena sem píanóleikari við Ríkisleikhúsið í Darmsstadt í Þýskalandi.

Tónleikarnir eru styrktir af Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.