Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við aukasýningu á uppfærslu Íslensku óperunnar á hinni vinsælu óperu La traviata eftir Verdi sem hætti fyrir fullu húsi árið 2019 og fékk frábæra dóma bæði innanlands og hjá erlendum gagnrýnendum. Hún verður sýnd í Eldborg 6. og 7. nóvember nk. Aðalhlutverkið verður sem fyrr sungið af Herdísi Önnu Jónasdóttur sem hlaut Grímuverðlaunin sem söngvari ársins fyrir túlkun sína á hlutverki Víólettu.

Íslenska óperan mun einnig sýna óperuna þann 13. nóvember Hofi í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarfélag Akureyrar og mun þetta verða í fyrsta sinn sem þessar stofnanir starfa saman en þetta verður fyrsta óperusýningin í fullri stærð sem sýnd er í tónlistarhúsinu Hofi á Akureyri.

Óperan sem fjallar um lífsgleðina, frelsið og forboðna ást er í þremur þáttum og var frumflutt í Feneyjum 6. mars árið 1853. Leiktextinn eftir Francesco Maria Piave er byggður á leikgerð skáldsögunnar Kamelíufrúin eftir Alexandre Dumas. Óperan hét upphaflega Violetta eftir aðalpersónunni og þykir ein sú allra fallegasta sem samin hefur verið. Hún er ástarsaga fylgdarkonu frá París og ungs manns utan af landi en þau eiga í forboðnu ástarsambandi sem úr verður mikill harmleikur.

Hljómsveitarstjóri Anna-Maria Helsing
Leikstjóri Oriol Tomas,
Leikmyndahönnuður Simon Guilbault,
Búningahönnuður Sébastien Dionne
Ljósahönnuður; Erwann Bernard
Videóhönnuður er Félix Fradet-Faquy.

Miðasala á www.opera.is, www.harpa.is  og www.mak.is

HLUTVERK
Violetta Valéry
Herdís Anna Jónasdóttir

Alfredo Germont
Rocco Rupolo

Giorgio Germont, faðir Alfredos
Hrólfur Sæmundsson

Flora Bervoix, vinkona Violettu
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir

Annina
Hrafnhildur Árnadóttir

Gastone
Snorri Wium

Barón Douphol
Oddur Arnþór Jónsson

Markgreifinn af Obigny
Aðalsteinn Már Ólafsson

Grenvil læknir
Valdimar Hilmarsson

Kór íslensku óperunnar og dansarar koma einnig fram í sýningunni. Kórstjóri er Magnús Ragnarsson

Sögulegt samstarf; Þetta mun verða í fyrsta sinn sem Íslenska óperan og Menningarfélag Akureyrar stofna til formlegs samstarfs varðandi óperuuppfærslur, en La traviata verður sýnd bæði í Eldborg og einnig í Hofi á Akureyri viku síðar og mun Sinfonia Nord sjá um hljómsveitarleik á öllum sýningunum undir stjórn Önnu-Mariu Helsing