10. mars – FLEY kvintett Egils Benedikts Hreinssonar minnist
Horace Silvers
Ari Bragi Kárason, trompet
Jóel Pálsson, saxófónn
Egill Benedikt Hreinsson, píanó
Gunnar Hrafnsson, bassi
Matthías M.D. Hemstock, trommur
Píanóleikarinn og tónskáldið Horace Silver er fæddur í Norwalk,
Connecticut, 2. september, 1928. Hann varð fyrst þekktur sem jazzpianisti
er hann var ráðinn í hljómsveit Stan Getz 1950 og fluttist fljótlega til
New York og hóf að semja og setja út jazztónlist. Frami hans óx mikið
er hann gekk til liðs við hina frægu sendiboða Art Blakeys, „The
Jazz Messengers“ sem píanóleikari og útsetjari og hafa mörg lög Silvers
á hljómplötum sendiboðanna smám saman orðið að sígrænum standördum í
jazzi, svo sem „The Preacher“ og „Song for my father“. Horace Silver hætti
hins vegar hjá Art Blakey 1956 og stofnaði eigin kvintett
með klassískri hljóðfæraskipan: trompet, saxófónn, píanó, bassi og
trommur. FLEY kvintettinn mun leika lög Silvers í upprunalegum
útsetningum. Má þar nefna lög svo sem Blowing the blues away, Doodlin’,
Filthy McNasty, Juicy Lucy, Liberated Brother, Peace, Senor Blues,
Sister Sadie, Song for my Father, Soulville, St Vitus Dance og
Strollin’. Egill hefur skrifað upp útsetningarnar er byggja á hinum
upprunalegum upptökum Silvers frá 6. og 7. áratug síðustu aldar.
Horace Silver lést árið 2014.