Skip to content

Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Út er komin geisladiskurinn Persian path með gítar og strengjaleikaranum Ásgeiri Ásgeirssyni.

Þetta er fimmta sólóskífa Ásgeirs og sá þriðji og síðasti í Þjóðlagaþríleiknum þar sem Ásgeir ferðast með íslenska þjóðlagið á framandi slóðir.
Hann hefur undanfarin tíu ár numið tónlist Austur Evrópu og Mið Austurlanda og farið á námskeið og sótt einkatíma í m.a. Búlgaríu, Grikklandi, Tyrklandi, Marokkó, Indlandi og í Íran.

Á diskunum þremur hefur Ásgeir samið nýjar laglínur með áhrifum af þessum ferðum sínum til stækka þjóðlögin og til að gefa þeim nýjan tón og útsett ásamt þeim Yurdal Tokcan, Borislav Zgurovski og Hamid Khansari fyrir Austrænan hljóðheim.

Árið 2017 kom út diskurinn Two sides of Europe unninn með nokkrum af fremstu hljóðfæraleikurum Tyrkja.

Árið 2018 kom út diskurinn Travelling through cultures unninn með nokkrum af færustu hljóðfæraleikurum Búlgaríu, þann disk prýða einnig frábærir auka gestir frá Indlandi, Grikklandi og Austurríki.

Persian path sem er nýkomin út er unnin með nokkrum af fremstu hljóðfæraleikurum frá Íran undir stjórn Hamid Khansari.
Diskurinn var tekin upp í Teheran, Istanbul og á Íslandi í fyrra og á þessu ári.

Söngurinn á þessum disk sem og öllum diskunum er í höndum hinnar einstöku Sigríðar Thorlacius en einnig syngja þau Samin Ghorbani og Egill Ólafsson gesta dúó í einu lagana á Persian path.

Þetta er risavaxið verkefni þar sem flytjendur eru yfir fjörtíu talsins frá átta löndum, kór, Austrænn strengjaoktett og frábærir hljóðfæraleikarar sem spila á hljóðfæri sem eru okkur misframandi.

Útgáfutónleikar fara fram í Flóa Hörpu miðvikudagskvöldið 30. september kl:20:00

Hljómsveit kvöldsins á útgáfutónleikum er skipuð þeim:

Ásgeir Ásgeirsson oud, tamboura og bouzouki
Sigríður Thorlacius söngur
Matti Kallio harmonikka
Haukur Gröndal klarinett
Erik Qvick slagverk
Diddi Guðnason slagverk
Þorgrímur Jónsson kontrabassi
Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir fiðla