Stórsveit Reykjavíkur
heldur tónleika í Flóa, Hörpu sunnudaginn 27. september Kl 20.
Hljómsveitin fagnar nýju starfsári með því að ferðast innanlands og flytja
úrval íslenskra verka sem hafa verið skrifuð fyrir hljómsveitina á liðnum árum.
Á meðal höfunda verða Hafdís Bjarnadóttir, Jóel Pálsson, Kjartan Valdemarsson,
Sigurður Flosason, Samúel Jón Samúelsson og Veigar Margeirsson.
Samúel J. Samúelsson stjórnar.
Miðar í miðasölu Hörpu og á harpa.is