Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri
Aliisa Neige Barrière

Leikfangasextett
Nemendur úr Skólahljómsveit Austurbæjar

Myndir
Susan Baton

Efnisskrá
Leopold Mozart//Leikfangasinfónían
Dan Brown//Dýrasinfónían

Kynnir
Bergur Þór Ingólfsson

Búast má við mikilli leikgleði þegar Dýrasinfónían eftir bandaríska rithöfundinn Dan Brown verður flutt í Hörpu af Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann er þekktastur fyrir bækur á borð við Da Vinci lykilinn en bregður hér á leik í skemmtilegu ævintýri þar sem dýrin eru í aðahlutverki.

Fyrsti þáttur Leikfangasinfóníunnar verður fluttur með aðstoð Maxa og ungra einleikara úr Skólahljómsveit Austurbæjar sem leika á dótatrompet, trommu og þríhorn, næturgala- og gauksflautu og hrossabrest. Það má búast við mikilli leikgleði þegar Maxi og félagar slást í för með Sinfóníunni

Sannkölluð ævintýraferð fyrir alla fjölskylduna.