Tix.is

Um viðburðinn

Maraþontónleikar á Menningarnótt – Sinfóníuhljómsveit Íslands
Tónlist eftir J.S. Bach, Leonard Bernstein, Gioachino Rossini, Ethel Smyth, John Williams, Vangelis og fleiri

Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri
Halldóra Geirharðsdóttir kynnir

Reykjavíkurmaraþon verður hlaupið í 36. sinn á Menningarnótt 2019. Margir meðlimir Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa tekið þátt í hlaupinu gegnum árin, og fjölmargir hlauparar eru dyggir áheyrendur sinfónískrar tónlistar. Á seinni tónleikum Sinfóníunnar á Menningarnótt verður leikin fjörmikil og hressileg tónlist til heiðurs þeim sem lokið hafa hlaupi þennan dag – en einnig öllum hinum sem fylgdust með af hliðarlínunni og hvöttu sitt fólk til dáða.

Tónleikarnir hefjast á Ólympíustefinu fræga eftir John Williams og þeim lýkur með hinu eina sanna hlaupalagi, stefinu vinsæla úr kvikmyndinni Chariots of Fire. Inn á milli hljóma taktfastir tónar, meðal annars Mambó eftir Bernstein, þáttur úr Brandenborgarkonsert eftir Bach og forleikurinn að Vilhjálmi Tell eftir Rossini. Þetta verða bráðskemmtilegir tónleikar sem öll fjölskyldan getur notið saman.

Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands á tvenna tónleika. Ókeypis er á báða tónleikana tónleikana og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hægt er að nálgast miða frá kl. 11:00 á tónleikadegi í miðasölu Hörpu.

Á Menningarnótt í Reykjavík býður Sinfóníuhljómsveit Íslands á tvenna tónleika kl. 15 og 17. Ókeypis er á báða tónleikana og hægt er að nálgast miða frá kl. 11:00 á tónleikadegi í miðasölu Hörpu og hér á vef Hörpu