Tix.is

Um viðburðinn

Sönglög Jónasar og Jóns Múla Árnasona
Laugardaginn 4. maí í Hannesarholti

Þórhildur Örvarsdóttir söngur
Pálmi Óskarsson söngur
Helga Kvam píanó

Þríeykið Þórhildur Örvarsdóttir, Pálmi Óskarsson og Helga Kvam
heimsækir nú Hannesarholt með sönglagadagskrá í tali og tónum, sem var hluti af tónleikaröð Listasumars á Akureyri 2018 en hefur verið flutt oft síðan við miklar vinsældir.

Þeir bræður sömdu fjöldann allan af söngleikjum, þar sem málefnum líðandi stundar voru gerð skil á léttan og spaugsaman hátt. Fjöldamörg lög úr þessum söngleikjum hafa lifað með þjóðinni æ síðan t.d. Undir Stórasteini, Án þín og Augun þín blá. Jónas Árnason samdi að auki texta við erlend lög og kunnust hafa orðið kvæði hans við bresk þjóðlög.
Ljúft og skemmtilegt vorkvöld sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Ummæli tónleikagesta: (af facebook)

Þetta var sturlað gaman!!!
Afskaplega skemmtilegt, kem til með að lifa á þessu lengi.

Mögnuð skemmtun!

Ég grét í gegnum fyrstu lögin af tómri hamingju yfir þessum listamönnum, bæði flytjendum og höfundum.

Kvöldverður í boði á eftir tónleikana fyrir þá sem kjósa. Borðapantanir í síma 511-1904 og hannesarholt@hannesarholt.is