Tix.is

Um viðburðinn

Í tilefni þess að Jakobína Sigurðardóttir, rithöfundur og skáld, hefði orðið 100 ára 2018 hefði hún lifað, stefnir Ingibjörg Azima á útgáfu sönglagabókar með 9 frumsömdum lögum við ljóð Jakobínu. Haldið verður upp á það í Hannesarholti 27. nóvember næstkomandi.

5 laganna má heyra á geisladisknum Vorljóð á ýli sem kom út haustið 2015 en 4 eru alveg ný og hafa ekki heyrst áður.  

Lögin eru öll útsett fyrir söng og píanó, sum hver eru í tveimur röddum en þó er hægt að flytja þau einradda.

Markmið með útgáfu sönglaga á nótum við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur er að varpa ljósi á stórkostlega ljóðlist hennar með lögum sem vonandi fá að hljóma sem víðast á söngtónleikum.

Sönglagabókin mun bera titil af einu laganna og síðan undirskrift:

Varpaljóð á Hörpu

9 Sönglög eftir Ingibjörgu Azimu við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur.

Bókin innheldur eftirfarandi ljóð og lög:

Togstreita

Varpaljóð á Hörpu

Vorljóð á ýli

Mömmuljúf

Barn

Sonargæla

Næturljóð

Flytjendur eru: Margrét Hrafnsdóttir, sópran, Þorsteinn Freyr Sigurðsson, tenór og Guðrún Dalía Salómonsdóttir, píanó.