Tix.is

Um viðburðinn

Marína Ósk Þórólfsdóttir, söngur
Mikael Máni Ásmundsson, gítar
Andri Ólafsson, bassi
Matthías MD Hemstock, trommur

Marína & Mikael gáfu út sína fyrstu plötu, Beint heim, í ágúst 2017 sem
var vel tekið og fékk tilnefningu til Íslensku Tónlistarverðlaunanna. Þau
hafa leikið saman síðan haustið 2014 og hafa sett saman veglega og
sérstaklega útsetta efnisskrá þar sem heiðraðir verða lítt þekktir jazz
standardar sem hafa ekki fengið næga ást frá fæðingu; en eiga hana svo
sannarlega skilið.