Píanóleikarinn Ingi Bjarni Skúlason leiðir samstarfsverkefni þriggja
tónlistarmanna frá Íslandi og Færeyjum. Tríóið spilar aðallega nýja
tónlist eftir Inga Bjarna sem er undir áhrifum frá Norrænum þjóðlögum
og jazzi með miklu spunaívafi. Á tónleikum Múlans mun tríóið flytja lög
sem síðar verða tekin upp fyrir væntanlega plötu. Þetta verkefni er
liður í að efla samstarf og samgang á milli íslenskra og færeyskra
tónlistarmanna.