Tix.is

Um viðburðinn

Gunnar og Arne hafa starfað saman að ýmsun verkefnum gegnum árin og ber
hæst tónleika sem báru yfirskriftina „Eldmessa“ og fjallaði verkið um Skaftárelda
1783. Tónleikarnir í Hallgrímskirkju eru spuni yfir íslensk og norsk þjóðlög.


Gunnar Gunnarsson lauk kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar 1988 og
lokaprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík ári síðar. Gunnar stundaði rannsóknir á
íslenskum sálmum bæði í Kaupmannahöfn og hér heima og birti niðurstöðurnar í
ritgerðinni Um Weyse-handritin og Choralbog for Island (1993). Auk hefðbundinna
starfa sem organisti og kórstjóri hefur Gunnar útsett og flutt trúarlega tónlist með
óhefðbundnum hætti um árabil; leikið með mörgum þekktum tónlistarmönnum, átt
þátt í útsetningum og hljóðritunum bæði djasstónlistar og þjóðlegrar tónlistar Á
undanförnum árum hefur Gunnar mest útsett fyrir kóra og sönghópa þ.á m. fyrir hina
nýju sálmabók kirkjunnar sem út kom á síðasta ári. Gunnar er organisti Fríkirkjunnar í
Reykjavík.

Arne Hiorth er norskur trompetleikari, tónskáld, útgefandi, tónlistarkennari og
verkefnastjóri. Hann hefur leikið með þekktu tónlistarfólki svo sem Mari Boine,
Bjørn Eidsvåg, Anja Garbarek , Oslo Groove Company (Spellemann Award for
Jazz 1990). Hans fyrsta einleikshljómplata „7 Oliphaunt Images“ om út 2004 og
með honum leika á henni Eivind Aarset, Kjetil Bjerkestrand and Hallgrim
Bratberg. Ásamt fjölmörgum öðrum plötum má t.d. nefna „Snow“ sem kom út
2007 ásamt píanóleikaranum Helge Nysted en það efni fluttu þeir á Íslandi 2014.
Arne Hiorth var einn valinn til að leika við minningarathöfn 2013 í Osló um
atburðina í Útey 22. júlí 2011.