Tix.is

Um viðburðinn

Tumi Torfason


Tónskáldið og trompetleikarinn Tumi Torfason fagnar útgáfu debútplötu sinnar “Torfær tími”, sem
tekin var upp síðastliðið sumar, með stærðarinnar tónleikum í Dómkirkjunni í Reykjavík. Á
efnisskránni eru fjölbreyttar tónsmíðar Tuma sem draga innblástur úr ýmsum áttum, jafnt klassískum
impressjón- og minimalisma sem og seinni tíma djasstónlist Ameríku og Norðurlanda. Hann skeytir
saman spuna við hið skrifaða, því lífræna við hið mekaníska, nýsköpun við hið tímalausa. Meðleikarar
Tuma eru stór hópur vina og kollega úr djass- og spunasenunni sem í gegnum plötuna og tónleikana
manna hljóðfæraskipan af ýmsum stærðum og gerðum, allt frá dúó upp í stórsveit.


Tumi stígur nú á stokk í þriðja sinn á Jazzhátíð Reykjavíkur en hann hefur leitt og tekið þátt í
verkefnum hér heima sem og í Stokkhólmi þar sem hann lauk nýverið námi við djassdeild Konunglega
tónlistarháskólans KMH.


Tumi Torfason : trompet og tónsmíðar
Tumi Árnason : tenór sax
Björgvin Ragnar Hjálmarsson : tenór sax og bassa klarinett
Hannes Arason : trompet og flygilhorn
Bjarni Már Ingólfsson : rafgítar
Mikael Máni Ásmundsson : rafgítar
Birgir Steinn Theódórsson : kontrabassi og rafbassi
Matthías Hemstock : trommur
…og fleiri