Tix.is

Um viðburðinn

Dagsetningar námskeiðs:

  • 26. ágúst kl. 09:00-12:00
  • 20. september kl. 19:00-22:00
  • 17. október kl. 19:00-22:00
  • 18. nóvember kl. 09:00-12:00

Á þessu ítarlega og gagnlega námskeiði er vandlega farið yfir allt sem nauðsynlegt er að vita varðandi fjármál við starfslok.

Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:

·        Hvenær og hvernig hentar að sækja lífeyrisgreiðslur?

·        Hvernig göngum við á séreignarsparnað og hvaða áhrif hefur tilgreind séreign?

·        Hvað þarf að vita varðandi greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar?

·        Er skynsamlegt að sækja hálfan lífeyri?

·        Hvernig deili ég lífeyri með makanum mínum?

·        Hvaða skatta kem ég til með að greiða?

Fyrirlesari mun svara spurningum þátttakenda og fer auk þess yfir tékklista þar sem tekið er á hverju skrefi í undirbúningi lífeyristöku.

Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar einkum fólki sem komið er yfir sextugt og vill bæta þekkingu sína á lífeyrismálum sem og þeim sem aðstoða nákomna lífeyrisþega. 

Ávinningur þátttakenda
Þátttakendur öðlast betri yfirsýn yfir réttindi sín og þá valkosti sem í boði eru. Bætt þekking dregur úr líkum á kostnaðarsömum mistökum og gefur færi á að hámarka virði lífeyris og réttinda.

 

Fyrirlesarinn
Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu á fjámálamarkaði þar sem hann stýrði meðal annars greiningardeild og fræðslumálum Íslandsbanka. Hann hefur haldið yfir 300 fyrirlestra um lífeyrismál og er höfundur bókarinnar Peningar.