Dagsetningar námskeiðs:
Á þessu ítarlega og gagnlega námskeiði er vandlega farið yfir allt sem nauðsynlegt er að vita varðandi fjármál við starfslok.
Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:
· Hvenær og hvernig hentar að sækja lífeyrisgreiðslur?
· Hvernig göngum við á séreignarsparnað og hvaða áhrif hefur tilgreind séreign?
· Hvað þarf að vita varðandi greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar?
· Er skynsamlegt að sækja hálfan lífeyri?
· Hvernig deili ég lífeyri með makanum mínum?
· Hvaða skatta kem ég til með að greiða?
Fyrirlesari mun svara spurningum þátttakenda og fer auk þess yfir tékklista þar sem tekið er á hverju skrefi í undirbúningi lífeyristöku.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar einkum fólki sem komið er yfir sextugt og vill bæta þekkingu sína á lífeyrismálum sem og þeim sem aðstoða nákomna lífeyrisþega.
Ávinningur þátttakenda
Þátttakendur öðlast betri yfirsýn yfir réttindi sín og þá valkosti sem í boði eru. Bætt þekking dregur úr líkum á kostnaðarsömum mistökum og gefur færi á að hámarka virði lífeyris og réttinda.
Fyrirlesarinn
Björn Berg Gunnarsson hefur 16 ára reynslu á fjámálamarkaði þar sem hann stýrði meðal annars greiningardeild og fræðslumálum Íslandsbanka. Hann hefur haldið yfir 300 fyrirlestra um lífeyrismál og er höfundur bókarinnar Peningar.