Tix.is

Um viðburðinn

Frelsaðu kraftinn

Sjálfseflandi ráðstefna um kvenheilsu

Hvernig getum við styrkt tengingu hugar og hjarta og aukið sjálfstraustið með einföldum aðferðum eins og hugleiðslu, hreyfingu og náttúrumeðferð?

Hvernig getum við nýtt okkur bæði meðvitaða öndun og öndunaræfingar til þess að auka jafnvægi í daglegu lífi; líkamlega, andlega og tilfinningalega?

Hvenær byrjar breytingaskeiðið? Hvernig er hægt að bæta lífsgæði kvenna á breytingaskeiði og eftir tíðahvörf til muna?

Hvað þurfa konur mikinn svefn og hvernig hefur svefn haft áhrif á þyngdarstjórnunarkerfin?

Hvaða næring hentar konum best til þyngdarstjórnunar og hvernig getum við lifað heilbrigðu lífi án öfga og megrunar.



“Þitt eigið breytingaskeið”
Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
læknir og stofnandi GynaMEDICA

Hvenær byrjar breytingaskeiðið? Hvernig er hægt að bæta lífsgæði kvenna á breytingaskeiði og eftir tíðahvörf til muna. Kynlöngun og kynheilbrigði er skoðað út frá hormónakerfi líkamans.


“Sterkari með sjálfsþekkingu”
Bjargey Ingólfsdóttir
fyrirlesari og eigandi Frelsaðu kraftinn

Hvernig getum við styrkt tenginu hugar og hjarta og aukið sjálfstraustið með einföldum aðferðum eins og hugleiðslu, hreyfingu og náttúrumeðferð. Frelsaðu kraftinn innra með þér og leyfðu þér að vera þú sjálf!

“Andaðu léttar”
Eva Katrín Sigurðardóttir
læknir og viðurkenndur Wim HofMethod þjálfari

Taugakerfið okkar, streita og álag. Eva fræðir okkur um leyndardóma andardráttarins og hvernig við getum nýtt okkur bæði meðvitaða öndun sem öndunaræfingar til þess að auka jafnvægi í daglegu lífi; líkamlega, andlega og tilfinningalega.

"Heilbrigt líf án öfga og megrunar"
Erla Gerður Sveinsdóttir
Sérfræðilæknir við offitumeðferð og fyrsti yfirlæknir Kvenheilsu Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins

Erla Gerður læknir og lýðheilsufræðingur hefur sérhæft sig í meðferðarúrræðum offitu um árabil og mun fræða okkur um heilbrigða þyngdarstjórnun fyrir konur.
Hvað þurfa konur mikinn svefn og hvernig hefur svefn haft áhrif á þyngdarstjórnunarkerfin?
Hvaða næring hentar konum best til þyngdarstjórnunar og hvernig getum við lifað heilbrigðu lífi án öfga og megrunar.