Frelsaðu kraftinn
Sjálfseflandi ráðstefna um kvenheilsu
Hvernig getum við styrkt tengingu
hugar og hjarta og aukið sjálfstraustið með einföldum aðferðum eins og
hugleiðslu, hreyfingu og náttúrumeðferð?
Hvernig getum við nýtt okkur bæði meðvitaða öndun og öndunaræfingar til þess að
auka jafnvægi í daglegu lífi; líkamlega, andlega og tilfinningalega?
Hvenær byrjar breytingaskeiðið? Hvernig er hægt að bæta lífsgæði kvenna á
breytingaskeiði og eftir tíðahvörf til muna?
Hvað
þurfa konur mikinn svefn og hvernig hefur svefn haft áhrif á
þyngdarstjórnunarkerfin?
Hvaða næring hentar konum best til þyngdarstjórnunar og
hvernig getum við lifað heilbrigðu lífi án öfga og megrunar.
“Þitt eigið breytingaskeið”
Hanna
Lilja Oddgeirsdóttir læknir og stofnandi GynaMEDICA
Hvenær byrjar breytingaskeiðið? Hvernig er hægt að bæta lífsgæði kvenna á breytingaskeiði og eftir tíðahvörf til muna. Kynlöngun og kynheilbrigði er skoðað út frá hormónakerfi líkamans.
“Sterkari
með sjálfsþekkingu”
Bjargey
Ingólfsdóttir fyrirlesari og eigandi Frelsaðu kraftinn
Hvernig getum við styrkt tenginu hugar og hjarta og aukið sjálfstraustið með einföldum aðferðum eins og hugleiðslu, hreyfingu og náttúrumeðferð. Frelsaðu kraftinn innra með þér og leyfðu þér að vera þú sjálf!
“Andaðu léttar”
Eva Katrín
Sigurðardóttir læknir og viðurkenndur Wim HofMethod þjálfari
Taugakerfið okkar, streita og álag. Eva fræðir okkur um leyndardóma andardráttarins og hvernig við getum nýtt okkur bæði meðvitaða öndun sem öndunaræfingar til þess að auka jafnvægi í daglegu lífi; líkamlega, andlega og tilfinningalega.
"Heilbrigt
líf án öfga og megrunar"
Erla Gerður Sveinsdóttir Sérfræðilæknir við offitumeðferð og fyrsti
yfirlæknir Kvenheilsu Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins
Erla Gerður læknir og lýðheilsufræðingur
hefur sérhæft sig í meðferðarúrræðum offitu um árabil og mun fræða okkur um
heilbrigða þyngdarstjórnun fyrir konur.
Hvað þurfa konur mikinn svefn og hvernig
hefur svefn haft áhrif á þyngdarstjórnunarkerfin?
Hvaða næring hentar konum best til
þyngdarstjórnunar og hvernig getum við lifað heilbrigðu lífi án öfga og
megrunar.