Tix.is

Um viðburðinn

Friðrik Ómar heldur jólatónleika aðeins fyrir konur fimmtudagskvöldið 15. desember.

 

„Konur eru það besta í mínu lífi. Mæður, systur, frænkur, dætur og allskonar konur.

Mig langar til að snúast í kringum þær extra mikið þetta kvöld. Þær verða bara fegnar

að geta skilið kallana eftir heima og tjúttað aðeins fyrir jólin. Þetta verður eftirminnilegt kvöld!” segir Friðrik.

 

Friðrik Ómar tekur á móti frábærum gestum á aðventunni líkt og undanfarin ár í Salnum. Hljómsveit Rigg viðburða leikur undir en Ingvar Alfreðsson útsetur og stjórnar. Sérstakir gestir verða margir af þekktustu söngvurum þjóðarinnar. Hér eru á ferðinni einir glæsilegustu jólatónleikar landsins sem fyrir mörgum eru orðnir ómissandi partur af aðventunni. Tilvalin skemmtun fyrir fjölskylduna, vinahópa og fyrirtæki!??
(Fyrirspurnir vegna stærri hópa sendist á rigg@rigg.is)

Gestgjafi: Friðrik Ómar
Fastir gestir: Jógvan Hansen og Margrét Eir. Óvæntir leynigestir kíkja við!
Hljómsveitarstjórn, útsetningar og píanó: Ingvar Alfreðsson
Bassi: Jóhann Ásmundsson
Slagverk: Diddi Guðnason
Gítarar: Kristján Grétarsson
Trommur: Jóhann Hjörleifsson

Blásturshljóðfæri: Sigurður Flosason

Verkefnastjórn og lýsing: Haukur Henriksen
Hljóðmaður: Sigurvald Ívar
Yfirumsjón: Friðrik Ómar
Framleiðandi: Rigg viðburðir

Fylgstu með undirbúningnum á instagram reikning Friðriks Ómars:
fromarinn


Sjá alla tónleikadaga

25. nóvember kl. 20.30 - Uppselt
26. nóvember kl. 20.30 - Uppselt
01. desember kl. 20.30 - Uppselt
02. desember kl. 20.30 - Uppselt
03. desember kl. 17.00 - Uppselt
03. desember kl. 20.30 - Uppselt
14. desember kl. 20.30 - Konukvöld
15. desember kl. 20:30 - Konukvöld
16. desember kl. 20:30
17. desember kl. 20:30
18. desember kl. 20.00