Tix.is

  • 6th - 9th of October
Um viðburðinn

Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í Reykjavík dagana 6-9 Október en þetta er 13.árið sem hátíðin er haldin.

Hátíðin mun eiga sér stað á nokkrum mismunandi stöðum í miðborginni:
Tjarnarbíó, Húrra, Fríkirkjan Í Reykjavik, Sirkus, Space Odyssey, Mál og Menningar Húsið, Miðgarður (center hotels). Í ár kemur mikill fjöldi listamanna fram á hátíðinni, Þarna koma saman ólíkir listamenn frá tilraunakenndum listamönnum til klassískrar listamanna. Þ.á.m. FENNESZ, KMRU, MEITEI, KLARA LEWIS, MARIA W HORN, ERALDO BERNOCCHI, PETULIA MATTIOLI, CHRISTOPHER CHAPLIN, KIRA KIRA, ÚLFUR, STEREO HYPNOSIS, RÚNAR MAGNÚSSON, SÓLEY: Harmónik, OKUMA, ARISTOKRASÍA (Úlfur Eldjárn), YAGYA, MIXMASTER MORRIS ofl.ofl.

Extreme Chill er hátíð sem setur ávallt markmiðin hærra með hverju ári og hefur nú verið haldin bæði í Berlín og víða um land og hefur líka verið í samstarfi við ýmsar hátíðir bæði hérlendis og erlendis.

Markmið hátíðarinnar er að kynna íslenska og erlenda raftónlistarmenn og tengja saman ólík listform, hljóðheim raftónlistarinnar og lifandi myndheim. Að tengja saman erlenda og innlenda tónlistar- og videó/myndlistarmenn og sköpun þeirra ásamt því að vekja athygli á rafrænni Reykjavík, raftónlistarhöfuðborg Íslands.

Hátíðar passinn kostar aðeins 11.900 kr og gildir á alla 4 dagana.

“4 daga tónlistarveisla þar sem íslenskir og erlendir listamenn með ólíkan bakgrunn á öllum aldri mætast í sköpun sinni undir áhrifum íslenskrar náttúru. Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafræna Reykjavík.”