JóiPé og Króli fara ásamt hljómsveit í ferðalag hringinn í kringum landið og spila á fjórtán tónleikum í jafnmörgum bæjarfélögum! Þeir félagar hafa þrátt fyrir ungan aldur gefið út fimm plötur á sex árum sem eru hver annarri ólíkari og kom sú nýjasta, Í miðjum kjarnorkuvetri, út á síðasta ári. Lög þeirra hafa slegið hvert metið á eftir öðru í hlustunum, þeir hlotið bæði Hlustenda- og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir verk sín og svo mætti lengi telja. Drengirnir eru spenntir að mæta og spila öll sín bestu lög þar sem stuð og stemning verður í fyrirrúmi.
Hljómsveitina skipa:
Hljómsveitarstjórn/Gítar: Hafsteinn Þráinsson
Bassi: Starri Snær Valdimarsson
Trommur: Ísak Emanúel Glad Róbertsson
Hljómborð/Trompet: Kári Hrafn Guðmundsson
Plötusnúður/Þeytisnælda/Munnharpa: Axel Magnús Kristjánsson
Dagsskrá
24. júní Hljómahöllin Keflavík - Sérstakur gestur: Gugusar
25. júní Midgard Base Camp Hvolsvelli
26. júní Skyrgerðin Hveragerði - Sérstakur gestur: Hipsumhaps
27. júní Hafið Höfn
29. júní Tónaflug Egilsbúð Neskaupstað
30. júní Græni Hatturinn Akureyri :
https://graenihatturinn.is/
1. júlí Samkomuhúsið Svarfaðardal
2. júlí Kaffi Rauðka Siglufirði
3. júlí Í garðinum hjá Láru Þingeyri
3. júlí Edinborg Ísafirði
6. júlí Skrímslasetrið Bíldudal - Sérstakur gestur: Magnús Jóhann
7. júlí Frystiklefinn Rifi:
https://www.thefreezerhostel.com/ - Sérstakur gestur: Una Torfadóttir
9. júlí Kótelettan Selfossi:
https://kotelettan.is/
10. júlí Bæjarbíó Hafnarfirði - Í hjarta Hafnarfjarðar : https://tix.is/is/baejarbio/buyingflow/tickets/11514/