Tix.is

Event info

JóiPé og Króli fara ásamt hljómsveit í ferðalag hringinn í kringum landið og spila á fjórtán tónleikum í jafnmörgum bæjarfélögum! Þeir félagar hafa þrátt fyrir ungan aldur gefið út fimm plötur á sex árum sem eru hver annarri ólíkari og kom sú nýjasta, Í miðjum kjarnorkuvetri, út á síðasta ári.  Lög þeirra hafa slegið hvert metið á eftir öðru í hlustunum, þeir hlotið bæði Hlustenda- og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir verk sín og svo mætti lengi telja. Drengirnir eru spenntir að mæta og spila öll sín bestu lög þar sem stuð og stemning verður í fyrirrúmi.

Hljómsveitina skipa:
Hljómsveitarstjórn/Gítar: Hafsteinn Þráinsson
Bassi: Starri Snær Valdimarsson
Trommur: Ísak Emanúel Glad Róbertsson
Hljómborð/Trompet: Kári Hrafn Guðmundsson
Plötusnúður/Þeytisnælda/Munnharpa: Axel Magnús Kristjánsson

Dagsskrá
24. júní  Hljómahöllin Keflavík - Sérstakur gestur: Gugusar
25. júní  Midgard Base Camp Hvolsvelli
26. júní  Skyrgerðin Hveragerði - Sérstakur gestur: Hipsumhaps
27. júní  Hafið Höfn
29. júní  Tónaflug Egilsbúð Neskaupstað
30. júní  Græni Hatturinn Akureyri :  https://graenihatturinn.is/
1. júlí  Samkomuhúsið Svarfaðardal
2. júlí  Kaffi Rauðka Siglufirði
3. júlí  Í garðinum hjá Láru Þingeyri
3. júlí  Edinborg Ísafirði  
6. júlí  Skrímslasetrið Bíldudal - Sérstakur gestur: Magnús Jóhann
7. júlí  Frystiklefinn Rifi:   https://www.thefreezerhostel.com/ - Sérstakur gestur: Una Torfadóttir
9. júlí  Kótelettan Selfossi:  https://kotelettan.is/
10. júlí  Bæjarbíó Hafnarfirði - Í hjarta Hafnarfjarðar : https://tix.is/is/baejarbio/buyingflow/tickets/11514/