ER LYGIN SÖNN?
Það sem byrjar sem sjálfsögð hjálp við námið breytist í miskunnarlausa orrahríð og ógnvænlega atburðarás sem kollvarpar valdajafnvæginu á milli kennara og nemanda, karls og konu og lífi þeirra beggja í leiðinni.
Beitt og meistaralega vel skrifað leikrit sem slær okkur út af laginu og spyr óvæginna spurninga. Á tímum þegar umræður og deilur um skilgreiningarvald og ólíkar orðræður hafa magnast er þetta leikrit Mamets um vald og sannleika ofureldfimt.
Höfundur David Mamet
Þýðing Kristín Eiríksdóttir
Leikstjórn Hilmir Snær Guðnason
Leikmynd Sean Macaoui
Búningar Sean Macaoui
Lýsing Þórður Orri Pétursson
Leikgervi Margrét Benediktsdóttir
Hljóðmynd Garðar Borgþórsson og Þorbjörn Steingrímsson
Leikarar Vala Kristín Eiríksdóttir og Hilmir Snær Guðnason
Frumsýning 29. ágúst