Jólasýning DWC fer
í fyrsta skipti fram á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. Allir nemendur skólans
koma fram og sýna atriði með sínum danshóp. Danshópum er skipt niður á sýningar
eftir stöðvum og allir danshópar sýna á tveimur sýningum.
Sýning 1 & 2 - kl.10.30 og kl.11.50
Allir danshópar í Mosfellsbæ, Selfossi, Smáralind og Ögurhvarfi.
Sýning 3 & 4 – kl.14.25 og 15.45
Allir danshópar í Egilshöll, Hafnarfirði, Laugum, Kringlunni og Seltjarnarnesi.
Frábær stemning myndast alltaf á sýningum enda er þetta einn skemmtilegasti dagur ársins í starfsemi skólans. Nemendur eru fullir af tilhlökkun og geta ekki beðið eftir að stíga á svið. Öll velkomin!