HRINGIR ORFEUSAR og annað slúður
Verk eftir Ernu Ómarsdóttur
Goðsögnin um listamanninn Orfeus hefur lifað um aldir. Sögur um ást hans til Evridísar, ferðalög til undirheima, um ævintýri hans og Argóarfaranna og um samneyti hans við Bakkynjurnar eru til í ýmsum útgáfum. Þessi vinsæli efniviður rekur þó rætur sínar til enn eldri sagna um gyðjuna Demetru sem sá á eftir dóttur sinni Persefónu í hendur Hadesar.
Í nýju verki Íslenska dansflokkins, “Hringir Orfeusar og annað slúður”, er gerð tilraun til þess að túlka þessar sagnir sem fjalla oftar en ekki um eilífa hringrás vaxtar og hrörnunar og nota til þess aðferðir hinna ýmsu listgreina. Sjónum er beint að umbreytingum, listsköpun og því ferli sem fætt hefur af sér hugmyndina um snillinginn Orfeus – manninn sem dáleiðir allt kvikt með söng sínum og nærist á sorginni.
Hver á „Gullna
reyfið?“ Hvaðan koma allir snákarnir? Hefur Evridís yfirleitt áhuga á að snúa
aftur til fyrra lífs? Hvernig dansar maður orð eða talar í dansi? Hvernig sjáum
við tónlist, heyrum við myndlist, hvernig varð tungumálið til? Og af
hverju dönsum við eiginlega í hringi?
Listrænn stjórnandi/höfundur/danshöfundur:
Erna Ómarsdóttir
Aðstoðardanshöfundur/dramatúrgísk ráðgjöf/æfingastjórn:
Aðalheiður Halldórsdóttir
Dramatúrg:
Bjarni Jónsson
Sviðmynd og leikmunir:
Gabríela Friðriksdóttir
Búningar:
Karen Briem
Ljósahönnuður:
Pálmi Jónsson
Tónlist:
Skúli Sverrisson og Valdimar Jóhannsson
Hljóðhönnun:
Valdimar Jóhannsson, Skúli Sverrisson og Jón Örn Eiríksson
Myndbandsvörpun og tæknistjórn:
Valdimar Jóhannsson
Verkið er unnið í nánu samstarfi við dansara Íslenska dansflokksins
Dansarar:
Andrean Sigurgeirsson, Bjartey Elín Hauksdóttir, Diljá Sveinsdóttir, Elín Signý W. Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Félix Urbina Alejandre, Inga Maren Rúnarsdóttir, Saga Kjerulf Sigurðardóttir, Shota Inoue