Tix.is

Borgarleikhús

Um viðburðinn

Deleríum Búbónis

Jólin eru á næsta leiti og Ægir Ó. Ægis forstjóri og mágur hans Jafnvægismálaráðherrann sjá fram á stórgróða vegna einkaleyfis þeirra á innflutningi á jólatrjám og ávöxtum. En það er í mörg horn að líta hjá forstjórahjónunum Ægi og Pálínu. Frumsýning á ballettinum Djákninn á Myrká stendur fyrir dyrum, þar sem Guðrún dóttir þeirra fer með aðalhlutverkið. Pálína þráir ekkert heitar en að mæta á frumsýninguna á bílnúmerinu R-9. Dægurlagahöfundurinn Leifur og atómskáldið Unndór takast á um ástir Guðrúnar. Sigga sviðsmaður vonar að sýningin hrynji ekki öll í gröf djáknans. Mælirinn gengur hjá leigubílstjóranum Gunnari og hinn slóttugi Einar í Einiberjarunni reynist erfiður ljár í þúfu. Þegar skip Ægis og ráðherrans með öllum herlegheitum jólanna er sett í sóttkví vegna skæðs faraldurs – Deleríum búbónis – þurfa mágarnir að taka á öllum sínum spillingarráðum. Deleríum búbónis er ein af perlum íslensks leikhúss, dásamlegur gamansöngleikur með pólítískum broddi, fullur af sígildum lögum bræðranna Jónasar og Jóns Múla Árnasona. Lög á borð við „Einu sinni á ágústkvöldi“, „Ljúflingshóll“ og „Söngur jólasveinanna“, sem flestir þekkja sem „Úti er alltaf að snjóa“.

Höfundar: Jónas og Jón Múli Árnasynir
Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson
Danshöfundur: Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Tónlistarstjórn: Agnar Már Magnússon
Leikmynd: Heimir Sverrisson
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Lýsing: Gunnar Hildimar Halldórsson
Hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson
Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir

Leikarar: Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Björn Stefánsson, Esther Talía Casey, Haraldur Ari Stefánsson, Halldór Gylfason, Sigurður Þór Óskarsson, Sólveig Guðmundsdóttir, Valur Freyr Einarsson og Vilhelm Neto
Hljómsveit: Agnar Már Magnússon, Matthías Hemstock, Nicolas Moreaux og Sigurður Flosason