Samuel Beckett: Hamingjudagar
Gestasýning Menningarfélags Akureyrar
"Ó, þetta er hamingjudagur, þetta verður enn einn hamingjudagur!“ segir Vinní, frægasta kvenpersóna Samuels Becketts. Hún er ákveðin í því að lífið sé hamingjuríkt og fallegt, þrátt fyrir að útlitið sé allt annað en bjart.
Verkið Hamingjudagar fjallar um takmarkalausan lífsvilja manneskjunnar og ódauðleika bjartsýninnar. Það þykir eitt skemmtilegasta leikrit Nóbelshöfundarins sem lætur hér gamminn geisa með hrífandi húmor, visku og ólíkindi.
Þýðing: Árni Ibsen