Vincent hefur fengið nóg af áreiti hversdagsins og lætur leggja sig inn á sjúkrahús í von um langþráðan frið. Friðurinn er þó víðs fjarri þar sem læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir sjúklingar, hver öðrum sérstakari, vaða inn og út úr sjúkrastofunni. Erillinn í lífi Vincents er meiri en nokkru sinni fyrr. Í sýningu Borgarleikhússins er áhorfendum boðið á tökustað þar sem verið er að taka upp þætti um Vincent og upptökunum er varpað á stóra skjái. Þar má sjá hvernig brögðum og brellum er beitt þegar sviðsmyndinni/ sjúkrastofunni, er snúið á alla kanta til að framkalla trylltar hugmyndir leikstjórans. Á sama tíma fara undarlegir hlutir að gerast á tökustað, hugmyndir fá vængi og fara á stjórnlaust flug.
Áhorfendur dragast hægt og rólega inn í sjálfa atburðarásina. Við lofum ótrúlegri leikhúsupplifun — þetta hafið þið aldrei séð áður. ROOM 4.1 LIVE var tilnefnt til Reumert-verðlaunanna, sviðslistaverðlauna Danmerkur. Árið 2012 sýndi Borgarleikhúsið stjörnusýningu Kristjáns, BLAM!, við miklar vinsældir. BLAM! var heiðruð með Reumert-verðlaununum árið 2012 og Grímunni árið 2013.
ROOM 4.1 LIVE byggir á þáttaröðinni ROOM 4.1 þar sem Kristján Ingimarsson Company hefur gefið sviðslistum vettfang á alnetinu. Leikhúsið leitast við að nálgast áhorfendur hvar sem þeir kunna að vera, í leikhúsinu sjálfu eða á netinu heima hjá sér.
ROOM 4.1. LIVE er samstarfsverkefni Borgarleikhússins, Íslenska dansflokksins og KICompany.
Þátttakendur eru Kristján Ingimarsson, leikarar Borgarleikhússins og dansarar Íslenska dansflokksins.
Höfundur og leikstjórn: Kristján Ingimarsson
Leikmynd: Kristian Knudsen, Charlotte Calberg og Kristján Ingimarsson
Búningar Charlotte Calberg
Lýsing: Karl Sørensen/Pálmi Jónsson
Tónlist og hlóðmynd: Lasse Munk
Dans og
sviðshreyfingar: Kristján Ingimarsson, Thomas Bentin, Noora Hannula, Kajsa
Bohlin ásamt öðrum þátttakendum í sýningunni
Leikgervi:
Ida Seidelin