Lýsing á JÁ OK LIVE:
Það er alveg galið að hið stórskemmtilega hlaðvarp, Já OK, stígi aftur á litla
sviðið í Borgarleikhúsinu þar sem það er frítt að hlusta á þá á öllum helstu
hlaðvarpsveitum. Hvað gætu Villi Neto og Fjölnir Gísla boðið hlustendum sem
aðeins hægt væri að upplifa í leikhúsinu? Jú, þeir hafa svo sannarlega planað
eitthvað stórkostlegt fyrir ykkur! Hver veit nema að þetta verði einn
merkilegasta atburður í Borgarleikhúsinu? Nú mega Danir passa sig!