Elfriede Jelinek: Prinsessuleikarnir
“Ertu prins, eða heitirðu bara Prins?”
Þegar Þyrnirós vaknar af aldarlöngum svefni horfist hún í augu við mann sem hún hefur aldrei séð en veit að hún á að elska. Eða hvað? Hver er hún án prinsins? Þarf Mjallhvít að deyja til að verða “hamingjusöm upp frá því” með sínum prinsi - sem hún hefur heldur aldrei séð. Þarf aðeins einn koss til að skapa prinsessu?
Með beittu háði og skörpu innsæi nálgast nóbelskáldið Elfriede Jelinek
goðsagnir og ævintýri um ólíkar prinsessur, tengsl þeirra við prinsa og eigin
sjálfsmynd, fordóma og fegurð, dauða og frelsi. Þrír þættir sem tefla fram
ólíkum prinsessum: Mjallhvíti, Þyrnirós og Jackie Kennedy.
Una Þorleifsdóttir leikstýrir þremur stórleikkonum, þeim Birgittu Birgisdóttur, Völu Kristínu Eiríksdóttur og Sólveigu Arnarsdóttur, í gegnum skógarþykkni og rósagerði í leit að prinsessunni í okkur sjálfum.
Frumsýning: 17. mars
Þýðandi: Bjarni Jónsson
Leikstjóri: Una Þorleifsdóttir
Leikmynd, búningar, lýsing: Mirek Kaczmarek
Tónlist og hljóðmynd:Gísli Galdur Þorgeirsson
Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson, Birgitta Birgisdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Sólveig Arnarsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir,.
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |