Tix.is

Borgarleikhús

Um viðburðinn

Samuel Beckett: Hamingjudagar

Gestasýning Menningarfélags Akureyrar

"Ó, þetta er hamingjudagur, þetta verður enn einn hamingjudagur!“ segir Vinní, frægasta kvenpersóna Samuels Becketts. Hún er ákveðin í því að lífið sé hamingjuríkt og fallegt, þrátt fyrir að útlitið sé allt annað en bjart.
Verkið Hamingjudagar fjallar um takmarkalausan lífsvilja manneskjunnar og ódauðleika bjartsýninnar. Það þykir eitt skemmtilegasta leikrit Nóbelshöfundarins sem lætur hér gamminn geisa með hrífandi húmor, visku og ólíkindi.

 

Þýðing: Árni Ibsen
Leikstjórn: Harpa Arnardóttir
Leikmynd og búningar: Brynja Björnsdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Ísidór Jökull Bjarnason
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Leikarar: Edda Björg Eyjólfsdóttir og Árni Pétur Guðjónsson