Getur orðið til töfrandi ævintýraheimur úr ruslinu
sem við hendum? Endurvinnsla, undirvitund, umbreyting.
Hvað gerir stúlka sem þarf að finna sig á nýjum stað? Til að takast á við
stórar áskoranir þarf oft hugrekki til að kafa niður á órætt dýpi. Stúlkan
sem stöðvaði heiminn er hrífandi myndræn upplifun fyrir stóra og
smáa. Stórkostlegur sköpunarkraftur helst í hendur við kraumandi
ímyndunarafl ! Áhorfendur eru leiddir úr einni veröld í aðra sem eru hver
annarri forvitnilegri, furðulegri og fallegri. Saga stúlkunnar er
ófyrirsjáanleg og spennandi en á sama tíma notalega kunnugleg. Töfrandi
saga og ævintýraleg upplifun!
Samstarf við sviðslistahópinn 10 fingur.
Leikhópurinn 10 fingur hefur um árabil lagt áherslu á að gera
sýningar sem börn og fullorðnir geta notið saman. Þau hafa sérhæft sig
í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar og má þar meðal annars nefna
sýningarnar "Skrímslið litla systir mín" og "LÍFIÐ
- stórskemmtilegt drullumall” sem mörgum eru minnistæðar fyrir óvænta
leikhústöfra og ljóðrænt sjónarspil sem snertir um leið við áhorfendum.
Höfundar
10 fingur
Helga Arnalds
Eva Signý Berger
Helga Arnalds
Eva Signý Berger
Sigríður Sunna Reynisdóttir
Valgeir Sigurðsson
Katrín Gunnarsdóttir
Fjölnir Gíslason
Kjartan Darri Kristjánsson
Alexía Rós Gylfadóttir
Alexía Björg Jóhannesdóttir
Alexía Rós Gylfadóttir
Ýr Jóhannsdóttir
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir
Leikarar
Sólveig Guðmundsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Kjartan Darri Kristjánsson