Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Kvikmyndin sem kom leikstjóranum Ridley Scott rækilega á kortið, en hér er á ferðinni blanda af hryllingi og vísindaskáldskap, tæknibrellum og frábærum leik sem gerir myndina klassíska vörðu í kvikmyndasögunni. Við fylgjumst með áhöfn geimskipsins Nostromo sem lendir á dauðvona plánetu eftir óljóst neyðarkall þaðan, við tekur óhugnaleg atburðarás sem enginn bjóst við…

Ekki missa af einstakri bíóupplifun og um leið 40 ára afmælisfögnuði ALIEN sem verður sýnd á nostalgískum Svörtum Sunnudegi 29. desember kl.20:00 og aukasýning kl.22:20 í Bíó Paradís!