Friðrik Ómar heldur jólatónleika aðeins fyrir konur fimmtudagskvöldið 15. desember.
„Konur eru það besta í mínu lífi. Mæður, systur, frænkur, dætur og allskonar konur.
Mig langar til að snúast í kringum þær extra mikið þetta kvöld. Þær verða bara fegnar
að geta skilið kallana eftir heima og tjúttað aðeins fyrir jólin. Þetta verður eftirminnilegt kvöld!” segir Friðrik.
Friðrik
Ómar tekur á móti frábærum gestum á aðventunni líkt og undanfarin ár í Salnum.
Hljómsveit Rigg viðburða leikur undir en Ingvar Alfreðsson útsetur og stjórnar.
Sérstakir gestir verða margir af þekktustu söngvurum þjóðarinnar. Hér eru á
ferðinni einir glæsilegustu jólatónleikar landsins sem fyrir mörgum eru orðnir
ómissandi partur af aðventunni. Tilvalin skemmtun fyrir fjölskylduna, vinahópa
og fyrirtæki!??
(Fyrirspurnir vegna stærri hópa sendist á rigg@rigg.is)
Gestgjafi:
Friðrik Ómar
Fastir gestir: Jógvan Hansen og Margrét Eir. Óvæntir leynigestir kíkja við!
Hljómsveitarstjórn, útsetningar og píanó: Ingvar Alfreðsson
Bassi: Jóhann Ásmundsson
Slagverk: Diddi Guðnason
Gítarar: Kristján Grétarsson
Trommur: Jóhann Hjörleifsson
Blásturshljóðfæri: Sigurður Flosason
Verkefnastjórn
og lýsing: Haukur Henriksen
Hljóðmaður: Sigurvald Ívar
Yfirumsjón: Friðrik Ómar
Framleiðandi: Rigg viðburðir
Fylgstu
með undirbúningnum á instagram reikning Friðriks Ómars:
fromarinn
Sjá alla tónleikadaga
25. nóvember kl. 20.30 - Uppselt
26. nóvember kl. 20.30 - Uppselt
01. desember kl. 20.30 - Uppselt
02. desember kl. 20.30 - Uppselt
03. desember kl. 17.00 - Uppselt
03. desember kl. 20.30 - Uppselt
14. desember kl. 20.30 - Konukvöld
15. desember kl. 20:30 - Konukvöld
16. desember kl. 20:30
17. desember kl. 20:30
18. desember kl. 20.00