Hljómsveitin Moses Hightower sendi á dögunum frá sér séna þriðju breiðskífu, „Fjallaloft“, og ætla þeir af því tilefni að halda tónleika í Hljómahöll á nýrri tónleikaröð sem ber nafnið Trúnó þann 5. október.
Nýja platan inniheldur 11 lög, en lögin „Fjallaloft“, „Feikn“, „Trúno´“ og „Sne ll“ hafa nú þegar gert góða hluti á öldum ljósvakans.
Síðasta plata Moses Hightower, „Önnur Mósebók“, hlaut einróma lof gagnrýnenda og var m.a. valin plata ársins 2012 hjá Fréttablaðinu. Hljoómsveitin hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin það árið fyrir lagasmíðar og textagerð, og 5 tilnefningar þar að auki.
Moses Hightower mun flytja nýju plötuna á tónleikunum í bland við eldra efni. Hljómsveitin kemur sjaldan fram sökum dreifðrar búsetu, þannig að ekki láta þessa sannkölluðu tónlistarveislu fram hjá ykkur fara!