DAGSKRÁ
16:00 – Miðasala og afhending hefst
20:00 – Húsið opnar
21:00 – Tónleikar hefjast
22:10 – Hlé í um 20 mínútur
23:30 – Áætlaður endir*
*Dagskráin getur riðlast og er birt með fyrirvara
MIÐASALA
– Uppselt er í A+ og A svæði. Örfáir lausir í B og C svæði.
– Tix verður með sölu og miðaafhendingu í Höllinni frá kl 16.
ALDURSTAKMARK
– Ekkert aldurstakmark er á tónleikana.
VEITINGAR
– Veitingasala verður á báðum hæðum Hallar.
– Óáfengir og áfengir drykkir í boði sem og pizzusneiðar.
AÐSTAÐA
– Hjólastólasvæði verður í salnum. Gæslan vísar veginn.
– Fatahengi verður á staðnum.
VARNINGUR
– Sérstakur Helgi Björns varningur verður til sölu á staðnum.
-------
Helgi Björns
varð 60 ára þann 10. júlí og af því tilefni blæs hann til
glæsilegra stórtónleika í Laugardalshöllinni laugardaginn 8. september.
SÉRSTAKIR GESTIR: Emmsjé Gauti, Högni og Ragga Gísla.
Helgi hefur átt gifturíkan feril sem söngvari, leikari og athafnamaður. Hann hefur leitt hljómsveitir eins og Grafík, SS Sól, Reiðmenn vindanna og Kokteilpinnana; gefið út tónlist með þessum sveitum og í eigin nafni og er fyrir löngu orðinn samofinn þjóðarsálinni með lögum sínum og textum.
Og nú til að fagna löngum og farsælum ferli á að tjalda öllu til. Helgi mun fara yfir allan ferilinn dyggilega studdur af húsbandi skipuðum færustu hljóðfæraleikurum landsins, bakröddum og góðum gestum.
Höllinn verður sett í afmælisgír – risaskjáir, sérsmíðað svið, brjálað hljóðkerfi og engu til sparað.
Hjómsveitina skipa:
Guðmundur Óskar Guðmundsson - Bassi og
hljómsveitarstjórn
Hrafn Thoroddsen - Hljómborð
Ingólfur Sigurðsson - Trommur
Kjartan Hákonarson - Trompet
Kjartan Valdemarsson - Hljómborð
Ómar Guðjónsson - Gítar
Óskar Guðjónsson - Saxófónn
Samúel Jón Samúelsson - Básúna
Stefán Már Magnússon - Gítar
Tómas Jónsson - Hljómborð
Þorvaldur Þór Þorvaldsson - Trommur
Ekki missa af risa afmælistónleikum á heimsmælikvarða!
Eingöngu er selt í númeruð sæti og fjögur verðsvæði eru í boði:
A+ svæði: 12.990 kr (appelsínugult, gólf) - UPPSELT
A svæði: 9.990 kr (rautt, gólf)
B svæði: 8.990 kr (blátt, stúka)
C svæði: 6.990 kr (grænt, stúka)
Sjá mynd af sal hér
Umsjón: Sena Live