Við munum spila víða um land í allt sumar. Það er við hæfi að byrja sumartúrinn okkar í firðinum fagra, Hafnarfirði. Auðvitað kom enginn annar staður til greina en Bæjarbíó.
Bjössi Sax verður með mér ásamt
Einari á hljómborð.
Við spilum mína helstu smelli ásamt bestu lögum allra tíma að okkar mati.
Sannkölluð tónlistarveisla.
Hljómsveit: Ingólfur Þórarinsson, Björn Kristinsson og Einar Örn Jónsson.