Tix.is

Um viðburðinn

Við munum spila víða um land í allt sumar. Það er við hæfi að byrja sumartúrinn okkar í firðinum fagra, Hafnarfirði. Auðvitað kom enginn annar staður til greina en Bæjarbíó.

Bjössi Sax verður með mér ásamt Einari á hljómborð. 

Við spilum mína helstu smelli ásamt bestu lögum allra tíma að okkar mati.

Sannkölluð tónlistarveisla. 

Hljómsveit: Ingólfur Þórarinsson, Björn Kristinsson og Einar Örn Jónsson.