Þann 11. maí næstkomandi efnir BIM Ísland
til ráðstefnu í Silfurbergi í Hörpu.
Á ráðstefnunni munu erlendir fyrirlesarar
fjalla um hvernig hægt er að auka virðissköpun og hagræða í hönnun, framkvæmdum
og rekstri mannvirkja með áherslu á sjálfbærni, stjórnsýslu og tækninýjungar
framtíðarinnar.
Ráðstefnan er fyrir alla aðila í mannvirkjagerð; hönnuði,
verktaka, verkkaupa, rekstraraðila og aðra sérfræðinga og því kjörið tækifæri til
að fræðast um þá miklu framþróun sem er í stafrænni mannvirkjagerð um þessar mundir. Nánar hér
Innifalið í miðaverði er morgunverður, hádegisverður og síðdegiskaffi.
Ráðstefnunni lýkur svo með glæsilegu kokteilboði.
BIM Ísland eru félagasamtök aðila sem koma að hönnun, framkvæmd, rekstri og eignaumsýslu mannvirkja. Tilgangur og markmið félagsins er að vera leiðandi samráðsvettvangur í þróun, innleiðingu og stöðlun í BIM og stafrænni tækni í mannvirkjagerð, ásamt því að hvetja til stöðugra umbóta í notkun BIM og stafrænnar tækni til aukinna gæða og hagræðingar á líftíma mannvirkja. Á síðustu árum hefur BIM Ísland undirbúið samræmt verklag fyrir BIM verkefni á Íslandi sem hægt væri að nota sem grundvöll að heildstæðari BIM innleiðingu og tæknibyltingu í íslenskri mannvirkjagerð. BIM Ísland er tilbúið að taka þátt í samtali um tækifærin sem felast í aukinni notkun BIM og annarrar tækni á íslenskum markaði.
Dagskrá:
08:30 Húsið
opnar - afhending ráðstefnupassa í miðasölu
08:55 Setning
ráðstefnu
09:00 Sigurður
Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, ávarpar ráðstefnugesti
09:15 Bergur
Ebbi, ráðstefnustjóri, flytur stutt erindi
09:25 Jaroslav
Nechyba, Deputy Chair of the EU BIM Task Group
EU BIM Task Group platform activities
supporting digital transformation
10:00 LÉTTUR MORGUNVERÐUR
10:30 Mayes
Ali, Head of Technology in ConTech Lab, Denmark
Pioneering projects on new technology
together with the Danish industry
11:00 Magdalena
Muniak, BIM coordinator COWI and Project Manager DiKon Infrastructure, Denmark
The importance of standardization and
digitalization in infrastructure
11:30 Hrefna
Rún Vignisdóttir, Research Manager at Sintef, Noregi
Notkun stafrænna upplýsinga til að draga
úr umhverfisáhrifum í Norskri mannvirkjagerð
12:00 HÁDEGISVERÐUR
13:10 Øystein
Ulvestad, BIM Developer
Death to drawings
13:50 Alexander
Schlachter, VDC Coordinator og Mats Solheim, VDC Specialist
How we utilize VDC at the Ny Ellebjerg
Concourse Hall (CRSH6) project
14:20 SÍÐDEGISKAFFI
14:50 Håvard
Vasshaug, Founder & CEO at Anker, Norway
The future of BIM is Information
15:20 Haukur
Páll Jónsson, Sérfræðingur í máltækni hjá Miðeind
Máltækni hjá Miðeind og nýting stórra
mállíkana
16:00 Ráðstefnu lokið
16:00 KOKTEILBOÐ