FÖGNUM 17. JÚNÍ Á BÍLATÓNLEIKUM Á BAUHAUS PLANINU MEÐ BUBBA OG FÉLÖGUM
BÍLLINN VERÐUR SKJÓL FYRIR VEIRU OG VEÐRI
BUBBI OG BAND, HJÁLMAR, GDRN OG BRÍET
“ÞETTA VERÐUR BÍLA BOMBA”
Lýðveldisdagurinn í ár verður sögulegur vegna aðstæðna í samfélaginu og tekur allt skipulag hátíðahalda, bæði borgar og bæja, mið af reglum sóttvarnarlæknis. Í ljósi þess ætlar Bubbi Morthens ásamt fríðu föruneyti að blása í tónleika sem eru sérsniðnir að þessum reglum og í raun brjóta blað enn eina ferðina í tónlist og blása í alveg nýja tegund af tónleikum.
ENN OG AFTUR BOBA FRÁ BUBBA
Tónleikarnir verða svo kallaðir “Bíla-tónleikar” en þá mæta tónleikagestir á sínum einkabíl og raða sér upp á bílaplaninu fyrir framan Bauhaus. Við enda bílaplansins er svið og fyrir ofan það risa LED skjár og þar stíga listamennirnir; Bubbi, Hjálmar, Bríet og GDRN, á svið og til að fullkomna upplifunina verður hljóðið sent út á FM tíðni beint inn í bílanna.
Tónleikarnir verða í fullri lengd og Bubbi sem kemur fram ásamt hljómsveit hefur lofað að þetta verði bomba, eða BOBA eins og hann stafar það og þá mega landsmenn eiga von á bombu.
BÍLLINN VERÐUR SKJÓL FRÁ VEIRU OG VEÐRI
Bíllinn er því þannig lagað ekki bara skjól fyrir veirunni sem þó er blessunarlega á miklu undanhaldi í samfélaginu, heldur er bíllinn líka skjól fyrir rigningunni sem nánast er staðalbúnaður á 17. júní eins og flestir landsmenn vita.
„Fólk mætir í bílum, fjölskylda eða vinir eða hvernig sem það er, fyrir framan risastórt svið og LED-skjár en hljóðinu verður streymt beint inn í bílinn. Ef þú ert með ágætiskerfi í bílnum þá ertu bara með geggjað sound,“ útskýrir Bubbi.
FRÁBÆRT LISTAFÓLK SEM LOKSINS FÆR AÐ KOMA FRAM
Bubbi og Hjálmar eru ekki bara að halda þessa tónleika saman heldur eru þeir á leið í hljóðver að taka upp nýtt lag sem við munum fá að njóta á næstu vikum. Bríet hefur átt eitt vinsælasta lag ársins á Íslandi sem er lagið “Esjan” og GDRN gaf í vetur út samnefnda plötu sem gagnrýnendur keppast við að hlaða lofi. Áhorfendur mega því eiga von á frábærum tónleikum með þessu einvalaliði.
LOKSINS AÐ SPILA FYRIR “LIVE” ÁHORFENDUR
Bubbi hefur verið duglegur að koma fram á streymis tónleikum en annað hefur í raun ekki verið í boði fyrir listamenn þjóðarinnar og þannig heimsins alls. En það er ljóst að þessir tónleikar verða með þeim fyrstu sem áhorfendur geta sótt í langan tíma. “Þetta verður geggjað, ég segi það og skrifa það, þetta verður BOBA” segir Bubbi í banastuði á Facebook síðunni sinni um helgina.
MEIRA UM PRAKTÍSKA HLUTI
Miðaverði er einnig stillt upp á sögulegan hátt því að því fleiri sem koma saman í bíl, því ódýrari verður aðgöngumiðinn. Þú kemur á bílnum, leggur í stæði, stillir útvarpið á tíðni sem er úthlutað á svæðinu og nýtur þess að sjá og heyra tónleikana úr bílnum. Alvöru sviðsvagn verður settur upp og risa LED skjár svo að allir geti notið úr bílnum sínum. Þetta er í fyrsta sinn sem tónleikar af þessu tagi eru haldnir á Íslandi en þeir eru að danskri fyrirmynd. Staðsetningin er frábær þar sem saman fer svæði með fjölda bílastæða með góðu aðgengi á Bauhaus planinu.
Allar nánari upplýsingar með leiðbeiningum um svæðið, aðkomu o.þ.h verða sendar á miðakaupendur þegar nær dregur.