Tix.is

Um viðburðinn

Í tilefni af 50 ára afmæli Mannakorna verða stórafmælistónleikar í Háskólabíói síðasta vetrardag 2024.

 Ekkert verður til sparað til að gera upplifun gesta sem mesta og má með sanni segja að hér sé um algjörlega einstakt tækifæri til að sjá Mannakorn á tónleikum, enda kemur hljómsveitin mjög sjaldan fram nú orðið.

Mannakorn hefur sent frá sér ógrynni af slögurum í hálfa öld sem hvert einasta mannsbarn kann og elskar 

Hver man ekki eftir lögum eins og: 

Reyndu aftur // Ó þú

Elska þig // Braggablús

Gamli góði vinur // Ég elska þig enn

Sölvi Helgason // Á rauðu ljósi

Einhverstaðar einhvern tímann aftur

Pálma, Magga og Ellen til halds og trausts verður landslið hljóðfæraleikara.

Þetta eru tónleikar sem sannir Mannakorns aðdáendur mega alls ekki láta framhjá sér fara!

Forsala miða hefst föstudaginn 1. des. maí kl 10:00 og verður inn á tix.is/mannakorn

Miðaverð frá 6.500 kr.

Þeir sem eru á póstlista tix.is komast fram fyrir röð og geta keypt miða frá og með 29. nóvember.

Hér skráir þú þig á póstlistann: http://eepurl.com/dx1lzL