Tix.is

Um viðburðinn

Tuborg og Landsbankinn kynna:

GDRN fagnar útgáfu samnefndrar plötu sinnar í Háskólabíói.

Öllu verður til tjaldað á stærstu tónleikum söngkonunnar til þessa og kemur Guðrún fram ásamt hljómsveit og góðum gestum.

Miðasala hafin á tix.is.

Vart þarf að kynna landsmenn fyrir Guðrúnu Ýri Eyfjörð sem stimplaði sig inn í íslenska tónlistarsenu undir listamannsnafninu GDRN með plötunni 'Hvað Ef' árið 2018. Síðan þá hefur hún sungið sig inn í hjörtu landsmanna með frumlegri tónlist og einstakri sviðsframkomu. Á Íslensku tónlistarverðlaununum 2019 hlaut Guðrún fern verðlaun, þar á meðal fyrir popp-plötu ársins, lag ársins og sem söngkona ársins. Nýverið hefur hún verið að gera garðinn frægan í leiklistinni þar sem hún tók að sér hlutverk Grímu sem aðalleikona í Netflix sjónvarpsþáttaröðinni Kötlu. Guðrún er því spennt að komast aftur á svið og fá að flytja tónlist.

Hún vann hörðum höndum ásamt þeim Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni, Arnari Inga Ingasyni og fjöldanum öllum af hæfileikaríkum listamönnum að nýrri plötu sem ber nafnið GDRN sem kom út þann 21. febrúar 2020. Platan verður flutt í heild sinni á tónleikunum ásamt breiðu úrvali af áður útgefinni tónlist hennar. Þetta er viðburður sem enginn má láta fram hjá sér fara.

Hljómsveitina skipa Bergur Einar Dagbjartsson, Magnús Jóhann Ragnarsson, Arnar Ingi Ingason & Rögnvaldur Borgþórsson.

Strengjakvartett mun einnig vera á sviði ásamt og góðum gestum.

Miðasala er í fullum gangi nú á tix.is og eru aðeins örfáir miðar eftir.

Athugið að þeir miðar sem hafa nú verið keyptir á útgáfutónleika GDRN eru enn í gildi.